Pages

sunnudagur, september 05, 2010

Melónur




Þessi færsla mun fjalla að mestu leyti um melónur.  
Af hverju?
Af því bara. 
Ég og móðir mín skottuðumst út í Hagkaup eld snemma í morgun því mig langaði svo gífurlega mikið í hindber. Ég hef upp á síðkastið séð mikið af vatnsglösum með hindberjum í og fundist það alveg ótrúlega spennandi og þurfti ég því auðvitað að prófa þetta sjálf. Mér til mikils ama eru hindber alveg fáránlega dýr og voru þau fáu hindber sem til voru farin að skemmast þannig að ég missti fljótt allan áhuga á hindberja vatnsglasinu mínu.
Þess í stað ákvað ég að kaupa mér melónu.
Það eru liðin mörg ár síðan ég fékk mér seinast melónu og ég ætla ekki að ljúga, ég var orðin afar spennt þegar ég kom heim.
Ég eyddi miklum tíma að pæla hvernig maður sker melónur í flotta báta en náði samt að klúðra þeim. En hún bragðaðist ótrúlega vel samt sem áður.
 Ég get því miður ekki talað endalaust um melónur því það væri leim þannig að ég skil bara þessar myndir eftir hérna:









yeeeeah melónur!

2 comments:

Snædís sagði...

you made my day... 0_o

Guðmunda sagði...

I knew you'd enjoy this post! =D